From: Ragnhildur Bjarnadóttir Sent: 15. nóvember 2006 14:45 To: Solveig Jakobsdottir; Salvör Gissurardóttir Subject: Sérhæfing í M.Ed. námi
Við óskum hér með eftir að þið gerið tillögu að 30 eininga sérhæfingu í Tölvu- og upplýsingatækni.
Aðtrar tillögur að titli að námsleið
Upplýsingatækni, miðlun og samskipti Upplýsingatækni, miðlun og samskipti í skólastarfiUpplýsingatækni, miðlun og samskipti í menntun
1. Setja þarf fram stutta lýsingu á markmiðum sérhæfingarinnar og á fyrirkomulagi vettvangsnáms.
Meginmarkmiðin með náminu á tölvu- og upplýsingatækni námsleiðinni er að mennta frumkvöðla sem geta stuðlað að bættu skólastarfi og menntun með aðstoð upplýsingatækni, nýrra miðla og samskiptaleiða. Námið ætti að henta vel þeim sem hafa lokið kjörsviðinu upplýsingatækni og miðlun í grunnnámi en einnig öðrum kennurum (nýútskrifuðum eða starfandi) sem vilja láta að sér kveða á þessu sviði. Nemendur fá færi á að efla sig í fjar- eða netkennslu og námsefnisgerð með nýjum miðlum. Þeir öðlast einnig meiri skilning á þeirri þróun sem er að eiga sér stað í nútímasamfélögum í þeirri upplýsingabyltingu sem nú stendur yfir og áhrifum hennar á menningu og lífstíl, nám og skólastarf. Lögð er áhersla á samskipti, samvinnu og gagnrýna umræðu og stefnt er að því að nemendahópurinn myndi öflugt námssamfélag. Einnig er lögð áhersla á verkefnamiðað nám þar sem nemendur sýna frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Hvatt er til þess að nemendur geri vinnu sína á brautinni aðgengilega og kynni hana eða birti á ýmsum vettvangi. Námsmat er með fjölbreyttum hætti en nemendur á námsleiðinni þróa m.a. stafræna sýnismöppu/verkefnamöppu (portfolio) á vef.
Meginmarkmiðið er að mennta sérfræðinga sem geta stuðlað að bættu skóla- og fræðslustarfi með aðstoð upplýsingatækni, nýrra miðla og samskiptaleiða. Nemendur öðlast þekkingu og skilning á áhrifum upplýsingabyltingarinnar á nám og skólastarf, samfélag, menningu og lífstíl. Jafnframt efla nemendur færni sína í notkun Netsins og annarra stafrænna miðla við kennslu og námsefnisgerð. Áhersla er lögð á samskipti, samvinnu og gagnrýna umræðu og að nemendahópurinn myndi öflugt námssamfélag. Hvatt er til að nemendur sýni frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð í verkefnamiðuðu námi, geri vinnu sína aðgengilega og birti hana á ýmsum vettvangi. Námsmat er með fjölbreyttum hætti og nemendur þróa stafræna verkmöppu (e-portfolio) á vef.
Nám á brautinni er fjarnám (netnám með staðbundnum lotum).
Tillaga 1 um tilhögun vettvangsnáms (send í bréfi 15.11. til kennara í fagráði).
Fyrirkomulag vettvangsnáms er með þeim hætti að í hverjum áfanga (eða í x áföngum af 6) er gert ráð fyrir sem svarar x (einni til tveimur) einingum þar sem nemendur munu vinna á vettvangi í skólum, öðrum menntastofnunum eða fyrirtækjum. Í stafrænni sýnismöppu ["vettvangsvasa"] munu nemendur sérstaklega halda til haga öllum upplýsingum um vettvangsnámið og skýrslum um vettvangsreynslu. Í lok námsins er gert ráð fyrir viðtölum við nemendur þar sem þeir gera grein fyrir reynslu af vettvangi og hvernig sú reynsla hafi nýst þeim í námi og til að þróast áfram sem fagfólk.
Tillaga 2 um tilhögun vettvangsnáms - mótist áfram....
Gert er ráð fyrir að um verði að ræða sterk og fjölbreytt tengsl við vettvang, mismunandi eftir áföngum. Um getur verið að ræða styttri vettvangsheimsóknir eða eiginlega vinnu í lengri tíma hluta námstímans, við eigin stofnun ef viðkomandi er í starfi meðfram náminu, og/eða við aðrar stofnanir, fyrirtæki eða samtök. Þar gæti einnig verið um að ræða rafrænan vettvang (t.d. vegna fjar- eða netkennslureynslu). Nemendur munu geta tengt rannsóknir við þessa reynslu bæði með gagnasöfnun á vettvangi og með því að gera athuganir á eigin kennslu og annarra samnemenda. Gert er ráð fyrir að í umræðum um fræði og rannsóknir komi nemendur vettvangsreynslu sinni á framfæri. Stefnt er að því að nemendur miðli hverjir öðrum af reynslu af vettvangi. Nemendur halda stafræna sýnismöppu um verkefni sín. Þar verður sérstakt svæði ["vettvangsvasi"] þar sem nemendur munu sérstaklega halda til haga skýrslum og öðrum upplýsingum um reynslu sína af vettvangi í hverjum áfanga. Í lok námsins er gert ráð fyrir viðtölum við nemendur þar sem þeir gera grein fyrir reynslu af vettvangi og hvernig sú reynsla hafi nýst þeim til að þróast áfram sem fagfólk.
2. Tilgreina þarf hvaða námskeið yrðu í boði
Sex námskeið eru í boði, hvert fimm eininga. Spurning hvort unnt er að bjóða upp á meira.
Upplýsingatækni í menntun og tölvumenning skóla
Nám og kennsla á Netinu
Fjarnám og -kennsla
Margmiðlun til náms og kennslu
Miðlun, menntun og samfélag
Stafræn gjá eða upplýsingasamfélag fyrir alla?
3. Setja þarf af stað vinnu við námskeiðslýsingar eins fljótt og unnt er - þar sem tekið er tillit til viðmiðabæklings.
Við óskum eftir að fá upplýsingarnar sem beðið er um undir lið 1 og 2 í seinasta lagi 30. nóvember.
Sent: 15. nóvember 2006 14:45
To: Solveig Jakobsdottir; Salvör Gissurardóttir
Subject: Sérhæfing í M.Ed. námi